Wednesday, March 19, 2008

Mikið fannst mér Íslensku Tónlistarverðlaunin sorgleg í gær. Salurinn hálf tómur og greinilega lítil stemmning fyrir þessu. Það er svo sem allt í lagi að hafa svona verðlaunahátíðir ef fólk vill endilega klappa sjálfum sér og öðrum á bakið. Finnst það sjálfri hálf kjánalegt. En á þetta heima í sjónvarpinu? Ekki virtust margir hafa áhuga á að mæta á svæðið. Þarf að neyða þetta upp á okkur hin sem heima sitjum? Er ég kannski bara fúl á móti?

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Var einmitt að hugsa það sama, fannst þetta frekar soldið glatað. En það jafnaðist ekkert á við kjánahrollinn sem ég fékk þegar háttvirtur menntamálaráðherra fór að veita Rúna Júll. verðlaun !!

5:02 AM  
Blogger lou said...

Fólkið er bara frammi á fylleríi. Hefur ekki áhuga á þessu nema til að taka sjálft við verðlaunum, klappa sjálfum sér dáldið á bakið..

Húrra samt fyrir litlabrósa mínum sem fékk tvenn verðlaun :D

kv
Lovísa

7:38 AM  

Post a Comment

<< Home