Getur einhver útskýrt eitt fyrir mér? Um daginn var stúlka að nafni Aðalbjörg Ósk valin ungfrú Reykjavík 2008. Í sömu keppni lendir stúlka að nafni Alexandra Helga í öðru sæti. Svo núna um helgina var ungfrú Ísland valin og þar lendir Alexandra Helga í fyrsta sæti en Aðalbjörg Ósk í 4.-6. sæti. Hvað gerðist á þessum stutta tíma á milli keppnanna? Af hverju er Alexandra allt í einu orðin sætari en Aðalbjörg? Þetta ruglar mig.

3 Comments:
Dagsformið skiptir öllu í þessum bransa.
EG
Alexandra var farin að lesa svo mikið meira en hin............
og búin að ferðast aðeins innanlands líka í millitíðinni.
Og brúnkuspreyjarinn hennar stóð sig miklu betur þetta kvöld.
Hún bloggaði meira á síðunni
Post a Comment
<< Home