Monday, July 21, 2008

Talandi um að þurfa alltaf að éta allt ofan í sig. Þegar ég var að vinna áður en ég byrjaði í skólanum þá voru kellurnar í vinnunni alltaf að fara í einhverjar kellingaferðir til Bandaríkjana með tómar ferðatöskur til að fylla í Mall of America og álíka stöðum. Ég ranghvolfdi alltaf augunum og hugsaði hvað þær væru nú miklir plebbar blessaðar konurnar. Hvert haldiði að ég sé að fara á föstudaginn? Minneapolis og hlakka svakalega mikið til! Er einhver með megatips til að ná að covera sem mest af svæðinu?

3 Comments:

Blogger Laulau said...

HLAUPA! og geyma tøskuna a godum stad til ad na ad fylla a sem skemmstum tima ;D
Goda ferd og skemmtun. Thad hlytur ad vera til eitthvad annad en Mall of America tharna fyrir handan, or what?
Eina sem eg veit ad eg thyrfti ad bua mig undir andlega er ad fara i gegnum øll "glæpamannahlidin"

2:48 PM  
Blogger a.tinstar said...

það þýðir ekkert annað en að bjóða mér í te að skoða góssið þitt ok?
er að NEI-ast með hjálmari hinum alræmda f norðan um helgina.

ég er alveg eyðilögð þessa dagana, sjá mitt ggolB

4:50 AM  
Anonymous Anonymous said...

Vildi að ég hefði séð þetta fyrr hefði geta komið með fullt af tipsum;-) Er nefnilega ein af þessum plebbalegu kellingum:-))
kveðja
Lísa

8:40 AM  

Post a Comment

<< Home